Slammæfingar og verðandi eiginmaður minn

Jæja. Núna á föstudaginn uppgötvaði ég að það voru ekki nema 6 mánuðir uppá dag þar til ég verð að vera komin í slamm-form. Ef einhver kann einhverjar góðar æfingar til að styrkja hálsvöðvana væru slíkar ábendingar því vel þegnar – þann 25. október næstkomandi stefni ég nefnilega á að vera stödd í Laugardalshöllinni að slamma fram á nótt við ljúfan undirleik Nightwish. Já, finnska metalgoðsögnin er að koma til landsins, frétti ég um jólin síðustu, með nýju söngkonuna í farteskinu. Ég sýndi gífurlega stillingu við þessar fréttir, og lét það eiginlega alveg vera að hoppa og syngja fyrr en ég var komin heim til mín (einhverjir muna sjálfsagt eftir svipaðri sjálfstjórn sem ég sýndi þegar ég heyrði að Josh Groban kæmi til landsins; ég gekk pollrólega útaf mannmörgu pósthúsinu áður en ég skríkti síðan af kæti fyrir utan á mannlausu bílastæðinu).

Hér er líklega rétt að huga að þeim sem ekki þekkja átrúnaðargoðin sem ég er að tala um. Þetta myndband (Amaranth) ætti að skýra æsing minn:

 

Ég vil benda áhugasömum á að þarna gefur að líta framtíðareiginmann minn, Tuomas Holopainen – það er þessi síðhærði og bráðlaglegi á hljómborðinu, upphafsmaður Nightwish, höfundur flestra laga þeirra, og heilinn á bak við sveitina. Sérstakur karakter – ákvað upphaflega að hann vildi stofna metalhljómsveit með klassískri söngkonu þó enginn hefði gert slíkt áður, síðan að hann vildi nota sinfóníuhljómsveit í metallögum þó enginn hefði gert slíkt áður, og síðan allt í einu að hann vildi sparka klassísku söngkonunni sem hafði gert sveitina svona fræga og fá sér sænska Abba cover-band söngkonu í staðinn. Í hvert einasta skipti sögðu allir að hann væri klikkaður, og í hvert einasta skipti snarvirkaði það. Og í hvert einasta skipti kom hann af stað æði og allir vildu gera eins og Nightwish. Eruði hissa að ég skuli ætla að giftast svona manni? Ég hugsa að tónleikastoppið á Íslandi sé bara yfirskin, geri ráð fyrir að hin raunverulega ástæða sé að hann ætli að biðja mín. Kominn tími til líka.

=Þ. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Það hlaut að koma að því! Til hamingju, Þóra mín.

Hulda (IP-tala skráð) 30.4.2008 kl. 12:35

2 identicon

ég mæli klárlega með slammæfingum....ég fór einusinni að djamma í mesta sakleysi mínu...missti mig svo á dansgólfinu og var með slammverki í marga daga á eftir....!! enda ekki búin að þjálfa upp slammvöðvana....

Anna (IP-tala skráð) 30.4.2008 kl. 17:51

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Talhonjik

Höfundur

Þóra Ingvarsdóttir
Þóra Ingvarsdóttir
Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Nýjustu myndir

  • Ekki laust við að smá skemmdir sjáist ef vel er horft
  • Ekki laust við að smá skemmdir sjáist ef vel er horft
  • Ég og Gunna-2
  • 9
  • 8

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.11.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 2
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 2
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband